Mataræði

Mataræði

Mataræði er allur sá matur sem lífvera neytir. Orðið er einkum notað í tengslum við þær venjubundnu ákvarðanir sem fólk tekur um hvað það borðar. Þótt menn séu alætur þá hafa matarhefðir, trúarbrögð og siðferði mikil áhrif á mataræði fólks. Það mataræði sem fólk kýs sér getur verið hollt eða óhollt út frá því sjónarmiði að einstaklingurinn fái næga næringu; bætiefni, steinefni og eldsneyti, í formi matar. Mataræði er talið hafa umtalsverð áhrif á breytileika langlífi og tíðni vissra sjúkdóma milli ólíkra samfélaga.

https://is.m.wikipedia.org/wiki/Matar%C3%A6%C3%B0i