Líf

Líf

Líf er sú eigind sem aðgreinir lífveru frá lífvana efni. Líf er þar af leiðandi eitt grunnhugtaka líffræðanna en er þó vandmeðfarið og síður en svo auðskilgreint. Skilgreining á lífi og því hvaða fyrirbrigði má telja til lífvera og hver ekki hefur oft verið deiluefni. Sem dæmi má nefna að ekki er ljóst hvort telja skuli veirur til lífvera. Í daglegu máli er sjaldnast gerður greinarmunur á eigindinni líf og hugtökum á borð við líferni og ævi lífveru en ekki er fjallað sérstaklega um þau hér.

https://is.m.wikipedia.org/wiki/L%C3%ADf